Fyrirtækið
  • Um okkur
  • Mannauður
  • Framkvæmdastjórn
  • Stefnur
  • Fréttir
  • Skammtímaleiga
  • Ríkiskaup
  • Sækja um starf
  • Hafa samband
Langtímaleiga
  • Tryggingar
  • Leiguskilmálar
  • Panta tíma
  • Spurt og svarað
  • Kílómetrastaða
Samfélagslegábyrgð
  • Blue Cares
  • Góðgerðarfest Blue
  • Sækja um styrk
  • Styrkveitingar
Bílasala
Upplýsingar
  • Blue Car Rental ehf.
  • Blikavöllur 3
  • 235 Keflavík Airport, Iceland
  • blue@bluecarrental.is
  • +354 773 7070
Bílasala
  • Blue Car Rental ehf.
  • Blikavöllur 3
  • 235 Keflavík Airport, Iceland
  • blue@bluecarrental.is
  • +354 773 7070
Blue
Blue

Blue Car Rental Ljósberi Ljósanætur annað árið í röð

27.ágúst 2026

Fréttir

Blue Car Rental Ljósberi Ljósanætur annað árið í röð

Blue Car Rental verður annað árið í röð Ljósberi Ljósanætur og erum við afar stolt af því að fá áfram að styðja við eina stærstu og skemmtilegustu hátíð Reykjanesbæjar.

Blue á sterkar rætur í Reykjanesbæ. Hér hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og stór hluti starfsfólks okkar býr og starfar á Suðurnesjum

Ljósanótt er einstök hátíð sem sýnir vel þann kraft, sköpunargleði og samheldni sem einkennir Reykjanesbæ. Á bak við hátíðina stendur stór hópur fólks sem leggur ómælda vinnu í undirbúning og framkvæmd og skapar þá stemningu sem við fáum öll að njóta þegar bærinn fyllist af lífi.

Það skiptir okkur hjá Blue máli að styðja við slíkt framtak og láta gott af okkur leiða í því samfélagi sem við tilheyrum.

Það sem gerir þátttökuna í Ljósanótt sérstaklega dýrmæta fyrir okkur er fólkið okkar. Stór hluti starfsfólks Blue býr á Suðurnesjum og Ljósanótt er hátíð sem margir þekkja vel, taka þátt í og njóta ár eftir ár með fjölskyldu og vinum.

„Ljósanótt er hátíð sem skiptir fólkið okkar miklu máli. Margir hjá Blue búa hér á svæðinu, taka þátt í hátíðinni og njóta hennar með fjölskyldu og vinum. Fyrir okkur er því sérstaklega ánægjulegt að geta lagt okkar af mörkum og stutt við hátíð sem skapar þessa einstöku stemningu og samveru í Reykjanesbæ. Við erum virkilega stolt af því að vera Ljósberi annað árið í röð,“ segir Magnús Sverrir [Eigandi Blue Car Rental].

Deila